Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 28. apríl 2015 17:10
Magnús Már Einarsson
Bale og Benzema með gegn Juventus
Karim Benzema.
Karim Benzema.
Mynd: Getty Images
Gareth Bale og Karim Benzema verða líklega báðir klárir í slaginn þegar Real Madrid mætur Juventus í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í næstu viku.

Bale hefur verið frá keppni í viku vegna meiðsla á kálfa en Benzema hefur ekkert spilað síðustu tvær vikurnar vegna hnémeiðsla.

Báðir leikmennirnir verða fjarri góðu gamni gegn Almeria annað kvöld.

Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, segist vonast til að fá Bale aftur til æfinga á fimmtudag.

Þá vonast Ancelotti til að Benzema geti byrjað að æfa aftur á sunnudag fyrir leikinn stóra gegn Juventus í næstu viku.
Athugasemdir
banner