Gary Martin hefur skrifað undir samning við KR til ársins 2017 en frá þessu er greint á heimasíðu félagsins.
Þennan enska sóknarmann þarf ekki að kynna fyrir íslenskum fótboltaáhugamönnum.
Hann kom til KR frá ÍA 2012 og var í liði ársins í Pepsi-deildinni í fyrra og árið þar á undan.
Gary Martin er dýrasti leikmaður Draumaliðsdeildarinnar ásamt Steven Lennon.
Athugasemdir