Miðasala á leik Íslands og Tékklands mun líklega fara fram mánuði fyrir leik.
Ísland fær Tékkland í heimsókn í undankeppni EM föstudagskvöldið 12. júní næstkomandi.
Mikil spenna er fyrir leiknum enda getur Ísland komist á toppinn í riðlinum með sigri.
Reikna má með að miðarnir verði fljótir að rjúka út og KSÍ ætlar að vanda til verka.

„Við erum ennþá að vinna í að undirbúa miðasöluna. Við erum ekki búin að ákveða dagsetningu en þetta verður ca mánuði fyrir leik," sagði Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri KSÍ við Fótbolta.net í dag.
„Við erum að reyna að undirbúa okkur og gera þetta eins vel og við getum."
Athugasemdir