Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 28. apríl 2015 14:00
Magnús Már Einarsson
Milos Ivankovic í Fjarðabyggð (Staðfest)
Milos Ivankovic.
Milos Ivankovic.
Mynd: Huginn
Fjarðabyggð hefur fengið varnarmanninn Milos Ivankovic í sínar raðir frá Huginn.

Milos var frábær í 2. deildinni í fyrra en hann átti stóran þátt í góðu gengi Huginn.

Milos skoraði fjögur mörk í 18 leikjum í 2. deildinni og var eftir tímabilið valinn í lið ársins.

Milos er fæddur árið 1988 en hann kom til Huginn frá Serbíu fyrir ári síðan.

Fjarðabyggð sigraði 2. deildina í fyrra en liðið mætir Grindavík í 1. umferð í 1. deildinni þann 9. maí næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner