Metz er í frönsku fallbaráttunni og er átta stigum frá öruggu sæti í deild þrátt fyrir að vera með sjö stigum úr síðustu þremur leikjum sínum.
Síðasti leikur liðsins var jafntefli gegn Bordeaux á laugardaginn sem hefði mögulega getað endað með sigri Metz ef Ferjani Sassi hefði skorað úr lygilega auðveldu færi.
Síðasti leikur liðsins var jafntefli gegn Bordeaux á laugardaginn sem hefði mögulega getað endað með sigri Metz ef Ferjani Sassi hefði skorað úr lygilega auðveldu færi.
Boltinn hrökk til Sassi, sem er varnartengiliður frá Túnis, sem var einn á móti marki en einhvern veginn tókst honum að pota boltanum framhjá af tæplega tveggja metra færi. Svo sannarlega rangur maður á réttum stað.
Myndbandið má sjá hér fyrir neðan og erum við nokkuð viss um það hér á Fótbolta.net að þetta sé versta klúður tímabilsins.
Athugasemdir