Norska undrabarnið Martin Ödegaard verður í fyrsta skipti í leikmannahóp Real Madid í spænsku úrvalsdeildinni annað kvöld.
Ödegaard er í hópnum sem mætir Almeria á morgun en mikil meiðsli eru hjá Real Madrid þessa dagana.
Sergio Ramos, Dani Cravajal, Karim Benzema, Gareth Bale og Luka Modric eru allir fjarverandi og þá er Sami Khedira tæpur fyrir leikinn.

Hinn 16 ára gamli Ödegaard hefur hingað til spilað með varaliði Real Madrid í spænsku C-deildinni.
Spænskir fjölmiðlar hafa gagnrýnt frammistöðu Ödegaard með varaliðinu þónokkuð en Norðmaðurinn hefur misst af síðustu tveimur leikjum þar vegna meiðsla.
Athugasemdir