Hér að neðan má sjá brot af boltaumræðunni á samskiptasíðunni Twitter í boði Vodafone. Með því að fylgja Fótbolta.net á Twitter færðu fréttaveitu þar sem inn rúlla nýjustu fréttirnar úr boltanum. Notið kassamerkið #fotboltinet fyrir boltaumræðuna á Twitter!
Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á @Fotboltinet
Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á @Fotboltinet
Fantasy fíllinn, @fantasyfill:
Það er búið að bæta við öllum leikmönnum sem vantaði í gærkvöldi. Hægt að versla Stefán Loga, Orra Ómars og félaga. #fotboltinet
Andri Janusson, Draumaliðsdeildinni:
Menn hafa trú á að Róbert Örn haldi lakinu hreinu í sumar, en um 50% liða er með hann í fantasy liðinu sínu. #fdeild #brammer #fotbolti
Viktor Hólmgeirsson, stuðningsmaður Stjörnunnar:
Að geta verið með Þórarinn Inga, Bjarna Þór, Atla Viðar, Pétur Viðars og rándýran útlending á bekknum er hreinasta sturlun.
Eyþór Guðjónsson, kop.is:
Skal alveg viðurkenna það að ég hef verið spenntari fyrir leikjum Liverpool en þessum Hull leik #gjaldþrot
Elfar Freyr Helgason, miðvörður Breiðabliks:
Þreyttari en Vilborg Anna og peningastefna Reykjanesbæjar til samans, svarið: #kaffi
Ingimar H. Finnsson, fótboltaáhugamaður:
„Möguleiki á að Moyes hætti með Sociedad" - Alfreð Finnbogason likes this.
Ásgeir Hilmarsson, fótboltaáhugamaður:
Snilld hjá @Fotboltinet að ná að redda draumaliðsdeild fyrir Pepsideildina... Orðinn ómissandi partur af fótboltasumrinu #fotboltinet
Hörður Snævar Jónsson, 433.is:
Arnar Pétursson er Suarez hlaupanna, svindlar til að sigra #Winner
Hrannar Már Gunnarsson, stuðningsmaður Víkings:
Af hverju ætti að fresta leik Fylkis & UBK? Vikes og 3 önnur lið þurftu að spila sína heimaleiki í Dalnum í fyrra. Mótið byrjar á sunnudag.
Elvar Geir Magnússon, ritstjóri Fótbolta.net:
Klakavandamálið í fyrra að hafa áhrif. Sá hluti Fylkisvallar sem er verstur í dag er hlutinn sem var verstur í klakaveseninu. #fotboltinet
Tanja Tómasdóttir, umboðsmaður:
Oftar en ekki vanmetið hvað 2-3 ár í Pepsi geta skilað miklu í þroska, stöðugleika og gæðum.
Halldór I. Sævarsson, stuðningsmaður Víkings:
Ungir leikmenn fara erlendis fyrr vegna þess að þeir fá betri þjálfun, geta einbeitt sér að fótbolta og fengið laun fyrir það
Runólfur Trausti Þórhallsson, stuðningsmaður KR:
@halldoringi Peningalega hliðin er skiljanleg en ég efast með hitt. Sérð bara hversu margir koma heim með skottið milli lappanna!
Rak augun í Morgunblaðið frá 1. sumardegi. Þar er mynd af Birki Má í sundi í Vestmannaeyjum #Skrýtið #TvífariDaxins pic.twitter.com/E0pD4drM34
— Benedikt Bóas (@benediktboas) April 28, 2015
Athugasemdir