Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fim 28. apríl 2016 17:54
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Villarreal og Liverpool: Kolo Toure byrjar
Fylgst með í úrslitaþjónustu á forsíðu
Kolo Toure byrjar hjá Liverpool.
Kolo Toure byrjar hjá Liverpool.
Mynd: Getty Images
Klukkan 19:05 verður flautað til leiks í fyrri viðureign Villarreal og Liverpool í Evrópudeildinni í fótbolta. Leikið verður á Spáni en Stöð 2 Sport sýnir leikinn í beinni.

Mamadou Sakho er að sjálfsögðu ekki með Liverpool en hann er í banni eftir að hafa fallið á lyfjaprófi. Reynsluboltinn vinsæli Kolo Toure er í byrjunarliði Liverpool og leikur við hlið Dejan Lovren.

Sóknarmaðurinn Christian Benteke er meðal varamanna Liverpool en hann hefur ekki leikið síðan í mars vegna meiðsla.

Villarreal freistar þess að komast í fyrsta sinn í úrslitaleik í Evrópukeppni.

Byrjunarlið Villarreal: Asenjo, Mario, Bailly, Ruiz, Costa, Dos Santos, Bruno, Pina, Suarez, Soldado, Bakambu.

Byrjunarlið Liverpool: Mignolet, Clyne, Toure, Lovren, Moreno, Lucas, Allen, Milner, Lallana, Coutinho, Firmino.
(Varamenn: Ward, Benteke, Sturridge, Skrtel, Ibe, Smith, Chirivella)
Athugasemdir
banner
banner
banner