Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 28. apríl 2016 21:23
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir úr Villarreal - Liverpool: Bertrand bestur
Bertrand Bailly fór af velli meiddur í síðari hálfleik. Gæti misst af leiknum á Anfield.
Bertrand Bailly fór af velli meiddur í síðari hálfleik. Gæti misst af leiknum á Anfield.
Mynd: Getty Images
Miðvörðurinn Eric Bertrand Bailly var valinn maður leiksins er Villarreal hafði betur gegn Liverpool í Evrópudeildinni fyrr í kvöld.

Goal er búið að gefa leikmönnum einkunnir fyrir sinn þátt og voru Kolo Toure og James Milner bestu menn Liverpool í leiknum.

Sóknarleikur Liverpool var ekkert sérstakur enda fá allir framliggjandi leikmenn liðsins 5 í einkunn, meira að segja Jordon Ibe og Christian Benteke sem komu inn af bekknum.

Rúmlega hálft lið heimamanna fékk 5 í einkunn en markvörðurinn Sergio Asenjo fékk 7 ásamt miðjumönnunum Bruno og Denis Suarez.

Roberto Soldado, fyrrverandi sóknarmaður Tottenham, var valinn verstur á vellinum þrátt fyrir að hafa fengið sömu einkunn og níu aðrir byrjunarliðsmenn af 22.

Villarreal:
Sergio Asenjo - 7
Eric Bertrand - 8 Maður leiksins
Mario Gaspar - 5
Victor Ruiz - 6
Jaume Costa - 5
Bruno - 7
Denis Suarez - 7
Jonathan dos Santos - 5
Pina - 5
Roberto Soldado - 5
Cedric Bakambu - 5
(Musacchio 5, Castillejo 5, Adrian 6)

Liverpool:
Simon Mignolet - 6
Nathaniel Clyne - 6
Dejan Lovren - 6
Kolo Toure - 7
Alberto Moreno - 5
James Milner - 7
Lucas Leiva - 6
Joe Allen - 6
Adam Lallana - 5
Philippe Coutinho - 5
Roberto Firmino - 5
(Benteke 5, Ibe 5)
Athugasemdir
banner
banner
banner