Breytingar verða á knattspyrnulögunum í sumar og taka þá gildi nýjar reglur sem verða meðal annars notaður á Evrópumóti landsliða í sumar. Ísland er fyrsta landið þar sem nýju reglurnar verða notaðar en Pepsi-deildin fer af stað á sunnudaginn.
Viðamesta breytingin í lögunum er í ákvæðinu um brottvísun fyrir að ræna upplögðu marktækifæri. Í þeim tilfellum, inni í vítateig, þar sem ekki er um ásetningsbrot að ræða, skal dæma vítaspyrnu og gefa hinum brotlega gult spjald.
Þar með er verið að milda hina umtöluðu „þreföldu refsingu" þar sem leikmanni er refsað fyrir að ræna upplögðu marktækifæri innan teigs með því að fá dæmda á sig vítaspyrnu, fá rautt spjald og þar með leikbann. Ef leikmaðurinn reyndi við boltann fær hann gult spjald.
Samskonar brot rétt fyrir utan teig er þá aukaspyrna og rautt spjald.
Það eru vafalítið margir markverðir sem fagna þessari reglubreytingu enda oft þeir sem hafa orðið fyrir barðinu á þreföldu refsingunni.
Hér að ofan má sjá stutt viðtal við Kristinn Jakobsson, formann dómaranefndar KSÍ.
Athugasemdir