KFS hefur fengið sóknarmanninn Jóhann Magna Jóhannsson í sínar raðir frá Reyni Sandgerði.
Jóhann Magni hefur raðað inn mörkunum fyrir Reyni Sandgerði undanfarin ár og skoraði m.a. 14 mörk í 15 leikjum í 3. deild í fyrra og var næst markahæstur í deildinni.
Magni ólst upp í Eyjum og lék síðast með KFS fyrir 10 árum síðan.
„Jóhann Magni, sem er 32 ára, hefur skorað 91 mark í 186 leikjum og er því gríðarlega mikill fengur fyrir Eyjaliðið. KFS býður Magna hjartanlega velkominn á heimaslóðir," segir í fréttatilkynningu frá ÍBV.
Athugasemdir