Dómstóll hefur komist að þeirri niðurstöðu að Liverpool þurfi að borga Burnley 8 milljónir punda fyrir sóknarmanninn Danny Ings.
Þessi 23 ára leikmaður varð samningslaus hjá Burnley síðasta sumar og skrifaði undir hjá Liverpool.
Þessi 23 ára leikmaður varð samningslaus hjá Burnley síðasta sumar og skrifaði undir hjá Liverpool.
Liverpool komst ekki að samkomulagi við Burnley um uppeldisbætur og því þurfti málið að fara fyrir dómstóla.
Þetta er mikið áfall fyrir Liverpool enda hefur Ings verið algjör aukaleikari í liðinu á þessu tímabili. Hann meiddist í október í landsliðsverkefni og hefur ekkert getað leikið síðan Jurgen Klopp tók við.
Athugasemdir