Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   fim 28. apríl 2016 15:20
Magnús Már Einarsson
Óli Jó: Björgvin kom óvænt upp í hendurnar á okkur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta kom óvænt upp í hendurnar á okkur og mér fannst við ekki geta sleppt því," segir Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, um Björgvin Stefánsson nýjasta leikmann liðsins.

Björgvin varð markakóngur í 1. deildinni í fyrra en hann er kominn á láni til Vals. Ólafur og Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari, þjálfuðu Björgvin hjá Haukum á sínum tíma.

„Við höfum verið að hugsa um Björgvin í smá tíma. Síðan kom þessi möguleiki upp núna í vikunni. Ég og Bjössi höfum þjálfað hann áður og þekkjum til hans. Við stukkum á þetta."

Valsmenn hefja leik í Pepsi-deildinni á sunnudag þegar þeir fá Fjölni í heimsókn.

„Það er alltaf smá stress í mönnum þegar það er fyrsti leikur. Við erum búnir að spila nokkra alvöru keppnisleiki og við verðum vonandi tilbúnir," sagði Ólafur.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.

Fyrsta umferð Pepsi-deildarinnar:

sunnudagur 1. maí
16:00 Þróttur R.-FH (Þróttarvöllur)
17:00 ÍBV-ÍA (Hásteinsvöllur)
19:15 Breiðablik-Víkingur Ó. (Kópavogsvöllur)
20:00 Valur-Fjölnir (Valsvöllur)

mánudagur 2. maí
19:15 Stjarnan-Fylkir (Samsung völlurinn)
19:15 KR-Víkingur R. (Alvogenvöllurinn)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner