Claudio Ranieri fékk að sjá myndband tileinkað sér frá borgarbúum í Leicester sem eru yfir sig ánægðir með árangur Leicester City FC á tímabilinu.
Ranieri horfði á myndbandið, sem er hægt að sjá hér fyrir neðan, og brosti út að eyrum þegar hann sá hversu innilega þakklátir borgarbúarnir eru honum.
Ranieri horfði á myndbandið, sem er hægt að sjá hér fyrir neðan, og brosti út að eyrum þegar hann sá hversu innilega þakklátir borgarbúarnir eru honum.
„Takk, kærar þakkir, þetta er stórkostlegt. Ég er í þessu starfi því mér finnst svo gaman að gleðja stuðningsmenn," sagði Ranieri á frekar tilfinningaþrunginni stundu, eftir að hafa horft á myndbandið.
„Eftir allt sem ég hef gefið í starfið þá er þetta æðsilegt, ég er mjög ánægður með að hafa fengið að sjá þetta myndband."
Leicester getur tryggt sér titilinn gegn Manchester United á Old Trafford um helgina.
Athugasemdir