Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 28. apríl 2017 20:00
Dagur Lárusson
Arsenal var með augastað á Alli
Wenger telur Alli vera sem hinn fullkomna leikmann
Wenger telur Alli vera sem hinn fullkomna leikmann
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, sagði á fréttamannfundi í dag að Arsenal hafði verið byrjað að skoða Dele Alli á undan Tottenham á sínum tíma þegar hann spilaði fyrir MK Dons. Eins og flestir vita þá hefur Dele Alli slegið í gegn með Tottenham síðan hann kom og hlotið tvisvar verðlaun fyrir að vera besti ungi leikmaður tímabilsins.

„Já við skoðuðum hann nokkrum sinnum”, sagði Wenger á fréttamannafundinum fyrir grannaslaginn á sunnudaginn.

„Við skoðuðum hann nokkrum sinnum vegna þess að við fórum á marga MK Dons leiki”.

„Hann hefur staðið sig frábærlega og er hinn fullkomni leikmaður. Það er stórkostlegt fyrir leikmann á hans aldri. Þeir gerðu vel að kaupa hann og gefa honum tækifæri”.

Tottenham og Arsenal mætast í grannaslag á Whit Hart Lane og með sigri getur Tottenham tryggt það í fyrsta sinn í 20 ár að liðið endi ofar í töflunni en grannar sínir.
Athugasemdir
banner
banner