„Þetta var það sem við stefndum að'' sagði Ásmundur Arnarsson eftir 1-0 sigur á HK í 2. umferð Borgunarbikarsins í kvöld.
Lestu um leikinn: HK 0 - 1 Fram
„Þetta var nú ekkert sérstakur leikur fóboltalega séð, það virtist vera spenna í báðum liðum og það gekk erfilega að halda í boltann,'' sagði Ásmundur þegar hann var spurður út í spilamennsku sinna manna.
Mark Framara var ansi skrautlegt, „þetta var bara beint af æfingasvæðinu'' sagði Ásmundur brosandi.
„Enginn óskadráttur, við viljum bara fara sem lengst í þessu'' segir Ásmundur að lokum.
Framarar eru komnir áfram í 32-liða úrslit Borgunarbikarsins en HK-ingar eru dottnir úr leik eftir leikinn í kvöld.
Athugasemdir