Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   fös 28. apríl 2017 14:00
Elvar Geir Magnússon
Pepsi-deildin
Bjössi Hreiðars: Eiður Aron er hörkuspilari
Valur mætir Víkingi Ólafsvík á sunnudagskvöld.
Valur mætir Víkingi Ólafsvík á sunnudagskvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Eiður Aron er sagður á óskalista Valsmanna.
Eiður Aron er sagður á óskalista Valsmanna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valsmenn hafa ekki farið leynt með það að þeir vilja bæta í vörnina hjá sér áður en félagaskiptaglugganum verður lokað.

„Það eru ýmsir möguleikar en ekkert í hendi. Við bíðum og sjáum. Við erum klárlega með mjög flotta gæja sem eru að spila núna og við ætlum ekki að taka bara eitthvað. Ef það býðst alvöru maður til að auka breiddina hjá okkur þá stökkvum við kannski á það," segir Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Vals.

Sögur eru í gangi um að Valur sé að reyna að fá miðvörðinn Eið Aron Sigurbjörnsson, fyrrum leikmann ÍBV. Eiður er nú hjá Holstein Kiel í þýsku C-deildinni en fær lítið að spila. Hefur Valur áhuga á Eiði?

„Það gæti vel verið, ef hann yrði laus. Hann er hörkuspilari. Það er ekkert klárt í neinu."

Sóknarmaðurinn Patrick Pedersen hefur einnig verið orðaður við Valsmenn en hann var markakóngur þegar hann lék með Hlíðarendaliðinu 2015. Patrick er núna hjá Viking í Noregi þar sem hann hefur verið í hlutverki varamanns.

„Patrick er að spila með Viking og er leikmaður þeirra. Hann hefur ekki verið að byrja að undanförnu og þá byrjar fólk að tengja við Ísland aftur, og þá okkur að sjálfsögðu. Ég veit ekki til þess að það er í einhverjum farvegi. Patrick er einn af betri sóknarmönnum sem hér hafa spilað síðustu ár," segir Sigurbjörn sem viðurkennir að Valsmenn myndu að sjálfsögðu taka honum opnum örmum ef hann væri til í að koma til baka.

Sigurbjörn segir að það sé mjög lítill munur á þeim liðum sem er allstaðar spáð að endi í topp fimm; FH, KR, Breiðabliki, Stjörnunni og Val.

„Þetta ræðst bara á smáatriðum. Við höfum undanfarið spilað við Stjörnuna og FH, það má ekkert á milli sjá þar. KR-ingar eru sterkir og Blikarnir mjög agaðir og þekkja sín hlutverk vel. Þessi lið eru öll í svipuðum pakka og svo er bara spurning hvernig stemningin verður og hvernig þetta spilast, hvernig lið byrja og annað. Svo eru fleiri lið sem maður getur séð stríða þessum liðum."

Það er 100% að við fáum skemmtilegra Íslandsmót en í fyrra.

„Það er alveg garanterað. Það var mikið upprót í fyrra og hugur manna var í Frakklandi meira og minna. Við lékum algjöran toppslag gegn FH í miðri Evrópugleðinni, það var ekki nokkur maður að nenna að mæta. Leikmenn voru jafnvel að pæla í EM. Sá leikur datt milli skips og bryggju. Það gerist ekki í sumar, það er alveg á hreinu," segir Sigurbjörn en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.

Ekki gleyma Draumaliðsdeild Eyjabita!
Mundu að gera breytingar á þínu liði í Draumaliðsdeild Eyjabita. Hægt er að skrá sig í allt sumar. Markaðurinn lokar klukkutíma fyrir fyrsta leik umferðarinnar.
Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsleiknum!
Athugasemdir
banner
banner