Í vikunni var tilkynnt að Íslenskur toppfótbolti hefði ákveðið að hækka lágmarksverð á leiki í Pepsi-deild karla í 2000 krónur.
„Það eru 7 eða 8 ár síðan að það var hækkað síðast og þetta er í takt við allt í þjóðfélaginu. Laun leikmanna eru sennilega 60-70% af kostnaði félaginu og þau hafa hækkað. Við þurfum að halda í við allt annað," segir Haraldur Haraldsson formaður hjá Íslenskum toppfótbolta.
„Ég hef ekki trú á því að þetta komi til með að fæla fólk frá vellinum. Það er mikil stemning í samfélaginu og við eigum eftir að sjá góða mætingu í fyrstu umferðunum."
Haraldur segir að mörg félög ætli að hafa frítt inn fyrir 16 ára og yngri í sumar.
„Ef fjölskylda er með tvo krakka sem eru 16 ára og yngri þá er þetta sama gjald. Mörg félög ætla að fella niður gjald á 16 ára og yngri."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Ekki gleyma Draumaliðsdeild Eyjabita!
Mundu að gera breytingar á þínu liði í Draumaliðsdeild Eyjabita. Hægt er að skrá sig í allt sumar. Markaðurinn lokar klukkutíma fyrir fyrsta leik umferðarinnar.
Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsleiknum!
Athugasemdir