Álftanes hefur fengið framherjann Hilmar Rafn Emilsson til liðs við sig fyrir átökin í 4. deildinni í sumar.
Hilmar Rafn hefur undanfarin tvö tímabil spilað með ÍH í 4. deildinni.
Þar áður var hann í lykilhlutverki í sóknarleiknum hjá uppeldisfélagi sínum Haukum.
Hinn þrítugi Hilmar hefur samtals skorað 72 mörk í 176 deildar og bikarleikjum á ferli sínum.
Álftanes sló Vestra úr 2. deild úr Borgunarbikarnum um síðustu helgi en liðið mætir Ægi í 2. umferð bikarsins á morgun. Hilmar er kominn með leikheimild fyrir þann leik.
Athugasemdir