Tveir tipparar voru með 13 rétta á Enska getraunaseðlinum síðastliðinn laugardag og vann hvor um sig 3.340.720 krónur.
Annar þeirra tippaði á 162 raðir og styður Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík og hinn rúllaði upp 13 réttum með því að tippa í gegn um snjalltækið sitt á 1X2.is.
Á morgun er risapottur á enska seðlinum og stefnir potturinn í 160 milljónir fyrir 13 rétta.
Að sjálfsögðu eru einnig allir leikir í Pepsi deild karla og kvenna á Lengjunni.
Athugasemdir