Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
   fim 28. maí 2015 21:48
Gunnar Birgisson
Óli Brynjólfs: Erum ekki búin að vinna rassgat
Óli er að gera flotta hluti með Vals liðið.
Óli er að gera flotta hluti með Vals liðið.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Ólafur Brynjólfsson þjálfari Vals var steinhissa þegar fréttamaður Fótbolta.net tjáði honum að lið hans væri komið á toppinn eftir 3-1 sigur á Fylki í Pepsi deild kvenna nú í kvöld.

„Nú það er svoleiðis, þá erum við á toppnum, hvað heldur þú? Það eru samt bara þrjár umferðir búnar við erum ekki búnar að vinna rassgat," sagði Ólafur í samtali við Fótbolta.net

Lestu um leikinn: Valur 3 -  1 Fylkir

„Þetta er náttúrulega bara barátta, gríðalega barátta bara fight-ingur. Fylkisliðið er gríðarlega baráttuglatt og við þurftum að taka á þeim þar."

„Ég var frekar vonsvikinn að við skyldum ekki vera meira yfir í hálfleik, við vorum búin að fá 4-5 dauðafæri meðan þær sköpuðu sér ekki neitt."

Næsti leikur Vals er gegn Stjörnunni.
„Við munum undirbúa okkur mjög vel það er engin spurning við erum komin þangað til að stríða þeim," sagði Óli að lokum.
Athugasemdir
banner