Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fim 28. maí 2015 22:06
Hafliði Breiðfjörð
Óli Guðbjörns: Vissum að þetta yrði hörkuleikur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er alltaf svekkjandi að tapa, það er alveg sama á móti hverjum það er," sagði Ólafur Guðbjörnsson þjálfari Íslandsmeistara Stjörnunnar sem töpuðu á heimavelli fyrir Selfossi í kvöld, 1-2.

„Mér fannst þetta ekkert sérstaklega góður fótboltaleikur. Menn réðu illa við aðstæðurnar svo það kom ekki mikill fótbolti út úr þessu, smá kaflar sem bæði lið áttu en ekkert mikið meira."

„Við vitum að þetta eru hörkuleikir, við vorum mun betri í seinni hálfleik og þær betri í fyrri hálfleik. Þannig var leikurinn og þetta datt þeirra megin. Mörkin voru ekki upp á marga fiska í dag."

„Selfoss er eina liðið sem við vorum ekki búin að vinna á þessu ári. Við vissum alveg að þetta yrði hörkuleikur og yrði jöfn deild. Þetta er erfiðara en í fyrra. Þær eru með flott lið, búin að byggja vel upp og bæta í sitt lið. Bara mjög gott lið, við vissum að þetta yrði hörkuleikur, við ætluðum að sjálfsögðu að vinna en það tókst ekki í dag."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner