Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 28. maí 2015 11:15
Magnús Már Einarsson
Rafa Benítez staðfestir að hann sé á förum frá Napoli
Rafa Benítez.
Rafa Benítez.
Mynd: Getty Images
Rafa Benítez, þjálfari Napoli, hefur staðfest að hann ætli að hætta með liðið eftir lokaumferðina í Serie A um helgina.

Benítez verður líklega kynntur sem nýr þjálfari Real Madrid í næstu viku.

„Ég vil þakka forsetanum, félaginu og stuðningsmönnunum fyrir þessi tvö ár hér hjá Napoli," sagði Benítez.

„Það er alltaf leiðinlegt að hætta í starfi þar sem fólk hefur komið vel fram við þig frá byrjun og þannig hefur þetta verið hjá Napoli."

Benítez þjálfaði á sínum tíma unglinga og varalið Real Madrid en hann mun nú taka við aðalliði félagsins af Carlo Ancelotti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner