Heimild: Vísir
Það verður vegleg útsending frá úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í kvöld á Stöð 2 Sport.
Alfreð Finnbogason, landsliðsmaður og leikmaður Augsburg Þýskalandi, verður annar sérfræðinga í upphitun fyrir leik og í Meistaradeildarmörkunum að þættinum loknum.
Jóhannes Karl Guðjónsson, fyrrum landsliðsmaður, atvinnumaður og núverandi spilandi aðstoðarþjálfari HK, verður einnig í myndveri en hann hefur verið í því hlutverki í útsendingum Stöðvar 2 Sports frá Meistaradeildinni í vetur.
Alfreð var á mála hjá Olympiakos í Grikklandi á fyrri hluta tímabilsins og spilaði hann þá í Meistaradeild Evrópu með liðinu. Meðal annars skoraði hann frægt sigurmark Grikkjanna í 3-2 sigri á Arsenal í Lundúnum.
Hörður Magnússon mun stýra Meistaradeildarmörkunum, en úrslitaleiknum sjálfum verður svo lýst af Guðmundi Benediktssyni.
Upphitun hefst klukkan 18.15 og leikurinn sjálfur, sem er í opinni dagsskrá, hefst klukkan 18.45.
Athugasemdir