Hull City 1 - 0 Sheffield Wednesday
1-0 Mohamed Diame (´72 )
1-0 Mohamed Diame (´72 )
Hull City varð í dag þriðja og síðasta liðið til þess að tryggja sér sæti í ensku úrvalsdeildinni, en liðið hafði betur gegn Sheffield Wednesday í úrslitaleik umspilsins í Championship-deildinni.
Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik og mikið undir. Í seinni hálfleik kom þó eina mark leiksins það skoraði Mohamed Diame með þrumuskoti.
Drengirnir hans Steve Bruce eru því komnir í ensku úrvalsdeildina á nýjan leik eftir eins árs fjarveru.
Eins og áður segir þá var gríðarlega mikið undir í leiknum, en sigurvegarinn var sagður fá 170 milljónir punda í tekjur.
Athugasemdir