„Mourinho hefur sýnt það að hann þarf ekki langan aðlögunartíma til að koma sínum hugmyndum á framfæri," segir Heimir Guðjónsson, þjálfari Íslandsmeistara FH.
Heimir ræddi í útvarpsþættinum Fótbolti.net við Tómas Þór Þórðarson um ráðningu Manchester United á Jose Mourinho. Í gærmorgun var það opinberlega staðfest að sá portúgalski mun halda um stjórnartaumana á Old Trafford.
Heimir ræddi í útvarpsþættinum Fótbolti.net við Tómas Þór Þórðarson um ráðningu Manchester United á Jose Mourinho. Í gærmorgun var það opinberlega staðfest að sá portúgalski mun halda um stjórnartaumana á Old Trafford.
„Mér finnst kallinn aðeins hafa misst þann sjarma sem hann hafði sem þjálfari. United vill auðvitað vera í fremstu röð og gerir þriggja ára samning við hann. Það er þessi líftími sem hann hefur hjá félögum. Hann nær árangri á þessum þremur árum."
Heimir segir klárt mál að Mourinho hafi verið lofað góðri upphæð til að styrkja liðið.
„Ég er nánast pottþéttur á því að það sé í samningnum hjá Mourinho að það verði fengnir alvöru leikmenn sem kosta ákveðna upphæð. Hann hefði aldrei tekið þetta starf nema hann hafi fengið vilyrði fyrir að kaupa alvöru leikmenn."
„Í grunninn er hann varnarþjálfari en hefur sýnt það að hann getur verið beinskeyttur í sóknarleik. Á Old Trafford sakna menn fótboltans undir stjórn Ferguson þar sem vængirnir voru mikið notaðir, tempóið hátt og öflugur sóknarleikur," segir Heimir en viðtalið má heyra í spilaranum hér að ofan.
Sjá einnig:
Hlustaðu á upptökur Fótbolta.net gegnum Podcast
Athugasemdir