Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 28. maí 2016 21:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lineker lætur Pepe heyra það á Twitter fyrir leikaraskap
Lineker var ósáttur með leiktilburði Pepe
Lineker var ósáttur með leiktilburði Pepe
Mynd: Getty Images
Gary Lineker, sparkspekingur og fyrrum leikmaður enska landsliðsins, lætur Pepe, varnamann Real Madrid, heyra það á Twitter.

Pepe reyndi að fiska Filipe Luis, bakvörð Atletico, af velli með alveg hræðilegum leikaraskap og það var Lineker ekki sáttur með.

Pepe lá í grasinu eftir baráttu við Luis og þegar Luis reyndi að hjálpa Portúgalanum aftur á fætur ákvað Pepe að nota gamla bragðið í bókinni sinni, taka um andlitið og velta sér eins og vitleysingur.

Mark Clattenburg, dómari leiksins, tók þennan vitleysisgang Pepe ekki í mál og sagði honum að standa á fætur.



Myndband af þessu atviki má svo sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner