Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 28. maí 2016 10:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Messi gæti misst af Copa America
Messi fer af velli í gær.
Messi fer af velli í gær.
Mynd: Getty Images
Lionel Messi haltraði af velli er Argentína mætti Hondúras í vináttleik fyrir Ameríkukeppnina en þetta var síðasti undirbúningur liðsins fyrir mótið.

Messi haltraði af velli eftir rúmlega klukkutíma leik en hann fékk högg á bakið og rifbeinin. Hann fékk aðhlynningu á vellinum og var svo tekinn útaf.

„Messi fékk þungt högg í mjóbakið og við þurfum að kíkja á hann," sagði Tata Martino, þjálfari Argentínu.

„Við vitum ekki hversu alvarlegt þetta er og við höfum áhyggur af honum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner