Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 28. maí 2016 16:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vináttulandsleikur: De Bruyne tryggði Belgum sigur
De Bruyne skoraði sigurmark Belga
De Bruyne skoraði sigurmark Belga
Mynd: Goal
Sviss 1 - 2 Belgía
1-0 Blerim Džemaili (´31 )
1-1 Romelu Lukaku (´34 )
1-2 Kevin de Bruyne (´83 )

Sviss fékk Belgíu í heimsókn í vináttulandsleik í dag. Bæði lið eru að undirbúa sig fyrir Evrópumótið í Frakklandi og var þessi leikur liður í þeim undirbúningi.

Heimamenn í Sviss náðu forystunni á 31. mínútu þegar Berim Džemaili skoraði, en aðeins þremur mínútum síðar skoraði Romelu Lukaku og jafnaði metin fyrir Belga.

Lukaku er á leið frá Everton, en hann skoraði 25 mörk á tímabilinu sem var að líða. Staðan var 1-1 í hálfleik, en það voru Belgar sem skoruðu eina markið í seinni hálfleiknum.

Það skoraði Kevin de Bruyne, leikmaður Manchester City á Englandi, en hann átti mjög gott tímabili í ensku úrvalsdeildinni.

Sigur Belga staðreynd, en næsti leikur liðsins er gegn Finnum á miðvikudaginn. Sviss mætir Móldóvu á föstudaginn næsta.
Athugasemdir
banner
banner