„Ég var bara að hugsa um Steven Gerrard á móti Panathinaikos, þetta söng inni," sagði Emil Ásmundsson miðjumaður Fylkis eftir 0-3 sigur á HK í Inkasso deildinni í dag.
Lestu um leikinn: HK 0 - 3 Fylkir
Emil skoraði tvö mörk í leiknum og var þarna að segja okkur hvað hann hugsaði þegar hann skoraði seinna markið með viðstöðulausu skoti á lofti sem söng í netinu, einkar glæsilegt mark.
„Ég hef oft gert þetta áður, lukkaðist þetta ekki vel, það held ég!" bætti hann við en Emil hefur líklega átt vð mark Gerrard gegn Olympiakos árið 2004 sem má sjá hér neðst í fréttinni.
Fylkir er 50 ára í dag og í tilefni af því var húllumhæ hjá félaginu.
„Þetta var ágætis afmælisveisla sem við gátum gefið félaginu á 50 ára afmælinu í dag. Ég fór á kvennaleikinn áðan, það var veisla, hoppukastalar og svalar fyrir krakkana. Ég tek kastalann sjálfur í kvöld."
Athugasemdir