Blikar fögnuðu sigri gegn Ólsurum í kvöld í fyrsta leik liðsins undir stjórn Milos Milojevic.
Lestu um leikinn: Breiðablik 2 - 1 Víkingur Ó.
„Mér fannst við aðeins sterkari aðilinn í þessum leik en hleyptum hættunni heim með því að fá mark á okkur úr hornspyrnu. Menn vildu ekki fá það í bakið. Víkingur Ólafsvík er flott lið með einstaklinga sem geta refsað," segir Milos.
„Ég var mjög ánægður með varnarleikinn í heild. Markið hjá þeim var einbeitingarleysi hjá okkur."
Michee Efete var settur á bekkinn þar sem hann mætti of seint til móts við liðið fyrir leik.
„Ég talaði við hann og hann sýnir þessu skilning. Hann er atvinnumaður og veit að ef hann mætir ekki á réttum tíma þá ertu ekki í liðinu. Ég tala serbnesku, íslensku og ensku en hann talar bara á ensku. Kannski er erfitt að skilja mig. Ég tek ekki hausinn af honum fyrir þetta. Hann kom inná og lokaði á vinstri kantinn þeirra síðustu 15 mínúturnar. Hann er sterkur og ákveðinn leikmaður sem við þurfum á að halda. En hann þarf að fara eftir sömu reglum og aðrir," segir Milos.
Er ekki enn markmið hjá Blikum að komast í Evrópukeppninni.
„Það var markmið fyrir tímabilið. Meðan það er tölfræðilega hægt þá horfum við á Evrópusætin. Ég segi samt strákunum að horfa á einn leik í einu, laga hluti og bæta gæðin í því sem við erum að gera."
Hlustaðu á viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir