Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   sun 28. maí 2017 22:32
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Óli Jó: Dion er ekki heill
Fyrsta tap Vals kom í kvöld
Fyrsta tap Vals kom í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals var fáorður eftir tap sinna manna gegn Grindavík í kvöld.

Lestu um leikinn: Grindavík 1 -  0 Valur

„Mér fannst við fínir í fyrri hálfleik. Mér fannst við vera með stjórn á þessum leik nánast allan leikinn en boltinn fór ekki inn og þar liggur munurinn," sagði Óli Jó.

Tapið í kvöld var fyrsti tapleikur Vals í sumar.

„Það er alltaf fúlt að tapa en það er nóg eftir af þessu móti og við höldum bara áfram."

Dion Acoff byrjaði á bekknum hjá Val í kvöld og kom það mörgum á óvart.

„Hann er ekki heill," sagði Óli Jó.

Næsti leikur Vals er stórleikur gegn Stjörnunni í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins

„Við verðum að undirbúa okkur fyrir hann. Við þurfum að jafna okkur á þessum leik sem fyrst og gera okkur klára fyrir bikarleikinn."
Athugasemdir
banner
banner
banner