Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 28. maí 2017 21:53
Ívan Guðjón Baldursson
Pepsi-deildin: FH náði í jafntefli í Frostaskjólið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR 2 - 2 FH
0-1 Kristján Flóki Finnbogason ('42)
1-1 Óskar Örn Hauksson ('48)
1-2 Atli Guðnason ('67)
2-2 Arnór Sveinn Aðalsteinsson ('80)
Lestu nánar um leikinn

KR mætti FH í risaslag kvöldsins og voru heimamenn talsvert betri aðili leiksins.

Gunnar Nielsen átti frábæran leik í marki FH-inga sem nýttu færin sín til fullnustu og komust tvisvar sinnum yfir í Frostaskjólinu.

Heimamönnum tókst þó að jafna í tvígang og voru óheppnir að skora ekki meira.

Bæði lið hafa byrjað tímabilið rólega og eru um miðja deild, KR með 7 stig og FH 6 eftir 5 umferðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner