Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 28. maí 2017 20:41
Ívan Guðjón Baldursson
Sky: Man City að kaupa Ederson fyrir 45 milljónir
Mynd: Getty Images
Sky Sports greinir frá því að brasilíski markvörðurinn Ederson er á leið til Manchester City fyrir 45 milljónir punda.

Þetta myndi gera Ederson að dýrasta markverði sögunnar, en hann er samningsbundinn Benfica og hefur áður spilað fyrir Ribeirao og Rio Ave í heimalandinu.

Ef þetta reynist rétt þá er ólíklegt að Joe Hart sé á leið aftur til félagsins, en hann hefur staðið sig vel með Torino í ítalska boltanum.

Ederson á fimm landsleiki að baki fyrir U21 árs lið Brasilíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner