Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   sun 28. júní 2015 22:51
Tómas Meyer
Beggi: Tveir tapleikir enginn heimsendir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér líður frekar illa, þessi leikur spilaðist ágætlega fyrir okkur og við erum með yfirhöndina í seinni hálfleik í stöðunni 1-1," sagði Bergsveinn Ólafsson fyrirliði Fjölnis eftir 1-3 tap gegn FH í kvöld.

Lestu um leikinn: Fjölnir 1 -  3 FH

„Við erum klaufar að nýta ekki okkar sénsa, við erum yfir á flestum stigum. Ef við hefðum nýtt sénsana þá hefði leikurinn ekki farið 3-1 en FH eru flott lið, flottir einstaklingar og fljótir að refsa fyrir mistök."

Fjölnir fékk dauðafæri til að komast yfir en mistókst að gera það.

„Svona gerist stundum þegar færin eru ekki nýtt þú færð það í bakið. Það gerist núna en við getum ekki breytt því núna og verðum að horfa fram á veginn."

„FH eru drullugóðir, og eru fljótir að refsa fyrir mistök. Þeir gerðu það meðal annars í öðru markinu þegar þeir komast í 2-1. Við missum boltann á 16 metrunum og þeir refsa okkur. Það gengur ekki að gera svona mistök á móti svona góðu liði eins og FH."

„Tveir tapleikir eru enginn heimsendir. Við erum ennþá með 17 stig og í ágætisstöðu. Við þurfum bara að rífa okkur upp."

Athugasemdir
banner
banner