Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   sun 28. júní 2015 23:01
Tómas Meyer
Gústi Gylfa: Búnir að semja við leikmann
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Fyrsta tapið okkar á heimavelli og að fá á okkur þrjú mörk var súrt. Sérstaklega því staðan var 1-1 í hálfleik," sagði Ágúst Gylfason þjálfari Fjölnis eftir 1-3 tap heima gegn FH í kvöld.

Lestu um leikinn: Fjölnir 1 -  3 FH

„Við komum frábærir inn fyrstu 20 mínúturnar í seinni hálfleik og gerðum hraða atlögu að FH og áttum að skora eitt mark. Við vorum frekar fúlir með það og gæði eins og FH hefur, þá refsa þeir. Tvö fyrstu mörkin á fjærstöngina þegar menn misstu aðeins einbeitinguna. Þeir refsa bara."

Fjölnisliðið hefur veikst því FH kallaði Emil Pálsson til baka úr láni og áður hafði liðið misst miðvörðinn Daniel Ivanovski. Ágúst ætlar að styrkja liðið frekar.

„Það koma nokkrir leikmenn í byrjun júlí á prufu hjá okkur erlendis frá. Við erum búnir að semja við einn leikmann sem á eftir að fara í læknisskoðun. Hann á eftir að skrifa undir en hann kemur úr 1. deildinni í Danmörku."
Athugasemdir
banner
banner
banner