Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   sun 28. júní 2015 21:58
Jóhann Ingi Hafþórsson
Hlíðarenda
Óli Jó: Ekkert vesen á okkur ennþá
Ólafur Jóhannesson
Ólafur Jóhannesson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, var að vonum ánægður með góðan 4-2 sigur sinna manna gegn ÍA í dag. Sigurinn var sanngjarn og hefði getað verið enn stærri.


Lestu um leikinn: Valur 4 -  2 ÍA

„Ég er mjög sáttur við sigurinn, þetta var fínn leikur hjá okkur."

„Mér fannst við komast í marga möguleika til að gera betri stöðu fyrr en svona er fótboltinn. Ég er fyrst og fremst ánægður með að hafa haldið út og klárað leikinn með stæl."

Valsliðið átti ekki sinn besta leik gegn ÍBV í síðustu umferð og vildi Óli svara fyrir þann leik.

„Við töldum okkur skulda sjálfum okkur að spila alvöru leik. Ég held við höfum gert það í dag."

„Skaginn er með gott lið, þeir komu hingað, börðust eins og ljón og eru bara fínir."

Ólafur var spurður hversu langt liðið gæti komist.

„Það er undir okkur komið, við höldum bara áfram að safna stigum. Það er ekkert vesen á okkur ennþá."

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner