Franski sóknarmaðurinn Moussa Dembele er genginn í raðir Celtic í Skotlandi. Þangað kemur hann frá Fulham á Englandi.
Hinn tvítugi Dembele gerði fjögurra ára samning við Celtic en hann er fyrsti leikmaðurinn sem knattspyrnustjórinn Brendan Rodgers kaupir eftir að hann tók við liði Celtic.
Dembele kom til Fulham frá PSG fyrir fjórum árum síðan en hann skoraði 17 mörk í 46 leikjum fyrir Fulham í vetur.
Til gamans má geta að Dembele þessi á nafna sem spilar í ensku úrvalsdeildinni með Tottenham.
Athugasemdir