Ejub Purisevic, þjálfari Víkings Ó., var brattur eftir sigur liðsins gegn Þrótti í kvöld. Leikurinn byrjaði þó ekki vel því Víkingar lentu 2-0 undir snemma leiks.
Lestu um leikinn: Víkingur Ó. 3 - 2 Þróttur R.
"Þetta voru einstaklingsmistök í mörkum Þróttara þarna í byrjun. Það var rosalegt að fá á sig tvö mörk á tveimur mínútum," sagði Ejub og bætti við.
"Núna get ég sagt að það var frábært fyrir okkur að komast til baka í þennan leik."
Hann er ánægður með hugarfar leikmanna.
"Við erum með sterkan karakter og í fínu formi. Það sem skiptir máli að leikmenn haldi haus. Á meðan við erum inni í leiknum er alltaf möguleiki að skora."
Víkingar eru eftir sigurinn í fínum málum í deildinni. "Ég er mjög sáttur. Það er ótrúlegt að vera með 17 stig eftir níu umferðir.
"markmiðið var að halda sér í deildinni.
Athugasemdir