Það er ansi áhugavert að skoða lista yfir stoðsendingahæstu menn Evrópumótsins á UEFA.com Þar er varnarmaðurinn Kári Árnason meðal efstu manna.
Kári er með tvær skráðar stoðsendingar til þessa á mótinu en báðar komu þær þegar hann skallaði áfram löng innköst Arons Einars en skallarnir enduðu á mönnum sem skoruðu.
Kári er í góðum félagskap meðal stoðsendingahæstu manna enda er Kári með jafnmargar stoðsendingar og menn á borð við Cristiano Ronaldo, Aaron Ramsey og Kevin De Bruyne.
Gareth Bale hefur gefið flestar stoðsendingar, þrjár talsins.
Athugasemdir