Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 28. júní 2016 11:44
Þorsteinn Haukur Harðarson
Miðasalan hefst klukkan 12:00 - Þeir sem hafa farið á fyrri leiki í forgangi
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðasalan á leik Íslands og Frakklands í 8-liða úrslitum EM hefst núna klukkan 12. Röðin á UEFA.com opnar 11:45

KSÍ hefur greint frá því að stuðningsmenn sem keypt hafa miða á fyrri leiki verði í forgangi en annars gildir „fyrstur kemur, fyrstur fær" fyrirkomulagið í miðasölunni.

Nú er bara að drífa sig inn á heimasíðu UEFA en tilkynningu KSÍ má sjá hér að neðan.

KSÍ hefur fengið þær upplýsingar frá UEFA að stuðningsmenn íslenska landsliðsins, sem keypt hafa miða af UEFA á fyrri leiki Íslands í keppninni, verði í forgangi þegar kemur að miðakaupum á leik Frakklands og Íslands í 8-liða úrslitum á EM.

Viðkomandi einstaklingar munu fá tölvupóst frá UEFA með frekari upplýsingum og leiðbeiningum. Um er að ræða miða sem eru sérstaklega ætlaðir stuðningsmönnum íslenska liðsins.
Ef þú hefur keypt miða á einhvern af leikjum Íslands hingað til, kíktu þá í innhólfið þitt!
Athugasemdir
banner