Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 28. júní 2016 19:17
Þorsteinn Haukur Harðarson
Raggi Sig í úrvalsliði 16-liða úrslitanna
Icelandair
Ragnar var geggjaður í gær!
Ragnar var geggjaður í gær!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: úrvalslið Whoscored.com
Ragnar Sigurðsson var ekkert minna en stórkostlegur í sigri Íslands gegn Englandi í gær. Ragnar skoraði jöfnunarmark Íslands í leiknum og stóð síðan vaktina í vörninni af stakri snilld.

Það eru ekki bara við Íslendingar sem hrífumst af frammistöðu Ragnars því vefsíðan Whoscored.com valdi Ragnar í úrvalslið 16-liða úrslitanna.

Ragnar skipar miðvarðarpar úrvalsliðsins ásamt Ítalanum Giorgio Chiellini sem skoraði sigurmark Ítalíu gegn Spánverja í gær.

Courtois er í marki úrvalsliðsins og þeir Griezmann, Hazard og Gomez eru fremstir.

Allt úrvalsliðið má sjá á mynd hér í fréttinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner