Ótrúlegt gengi Víkings Ó. á heimavelli heldur áfram eftir sigur gegn Þrótti í kvöld. Víkingar komu til baka og unnu 3-2 eftir að hafa lent 2-0 undir en liðinu virðist fyrirmunað að tapa á heimavelli.
Eftir leikinn í kvöld hefur liðið ekki tapað á heimavelli í 18 leikjum.
Seinasti tapleikur Víkinga í Ólafsvík kom fyrir rétt tæplega tveimur árum, gegn Grindavík í ágúst árið 2014.
Athugasemdir