Arsenal hefur keypt hægri bakvörðinn efnilega Calum Chambers frá Southampton á 12 milljónir punda.
,,Ég hlakka til að hitta nýja liðsfélaga mína í dag og byrja undirbúning fyrir tímabilið sem er framundan," sagði Chambers á Twitter í dag.
Þessi 19 ára gamli leikmaður á að berjast við Mathieu Debuchy um hægri bakvarðar stöðuna hjá Arsenal en hann kom til félagsins frá Newcastle á dögunum.
Þeir munu fylla skarð Bacary Sagna sem gekk í raðir Manchester City fyrr í sumar.

Koma Chambers til Arsenal þýðir að Carl Jenkinson er væntanlega á förum en West Ham og Hull hafa áhuga á honum.
Athugasemdir