Fastlega er búist við því að framherjinn Falcao leiki sinn fyrsta leik í hálft ár um næstu helgi þegar Monaco spilar í Emirates bikarnum.
Þessi kólumbíski landsliðsmaður skaddaði liðbönd í hné í janúar og misst af þeim sökum af Heimsmeistaramótinu í Brasilíu.
Monaco tekur þátt í Emirates bikarnum ásamt Arsenal, Valencia og Benfica og hefst mótið um næstu helgi.
Leonardo Jardem, þjálfari Monaco, staðfesti við fjölmiðla að hann búist við að Falcao spili á mótinu.
,,Ég tel að hann muni geta byrjað að spila á Emirates mótinu. Hann er á lokastigi endurhæfingarinnar," sagði Jardem.
Athugasemdir