mán 28. júlí 2014 16:01
Magnús Már Einarsson
Jay Rodriguez og Morgan Schneiderlin á leið til Tottenham
Jay Rodriguez.
Jay Rodriguez.
Mynd: Getty Images
Jay Rodriguez og Morgan Schneiderlin eru að bætast í flótta leikmanna frá Southampton ef marka má frétt Press Association í dag.

Samkvæmt fréttinni eru báðir leikmennirnir á leið til Tottenham þar sem þeirra fyrrum stjóri Mauricio Pochettino er nú við stjórnvölinn.

Southampton hefur selt nánast alla sína bestu leikmenn í sumar en Rickie Lambert, Adam Lallana og Dejan Lovren eru allir farnir til Liverpool.

Bakverðirnir ungu og efnilegu Luke Shaw og Calum Chambers eru síðan farnir til Manchester United og Arsenal.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner