Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 28. júlí 2014 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Lazio með hærra tilboð í Stefan De Vrij
Stefan De Vrij.
Stefan De Vrij.
Mynd: Getty Images
Lazio hefur gert Feyenoord nýtt og endurbætt tilboð í miðvörðinn Stefan De Vrij, sem einnig er eftirsóttur af Manchester United.

Þetta er annað tilboð Lazio í leikmanninn á skömmum tíma, en fyrra tilboðið hljómaði upp á sjö milljónir evra og var því hafnað. Talið er að hið nýja tilboð sé níu milljón evra virði.

Manchester United hefur einnig verið sterklega orðað við De Vrij, en hann var öflugur í liði Hollendinga sem nældi í brons á Heimsmeistaramótinu í Brasilíu.

Forseti Lazio mun vera undir mikilli pressu á meðal félagsmanna að landa öflugum varnarmanni eftir að liðið missti af Davide Astori, sem gekk í raðir erkifjendanna í Roma.
Athugasemdir
banner
banner
banner