Enska úrvalsdeildarfélagið Everton hefur fest kaup á Muhamed Besic frá Ferencvaros en hann gerði fimm ára samning við félagið.
Besic, sem er 21 árs gamall miðjumaður, kom við sögu með Bosníu og Herzegóvínu á HM í sumar en hann þykir afar öflugur.
Hannv ar orðaður við nokkur stórlið en ákvað að velja Everton á endanum. Enska félagið borgar um 5 milljónir evra fyrir hann.
,,Muhamed er ungur knattspyrnumaður sem hefur þróað leik sinn gríðarlega undanfarin tvö tímabil," sagði Martinez.
Athugasemdir