Rafael, bakvörður Manchester United, er farinn aftur heim til Englands úr æfingaferð liðsins í Bandaríkjunum. Rafael er meiddur á nára.
Hann varð fyrir meiðslunum á æfingu í Denver á föstudaginn fyrir 3-2 sigur gegn Roma.
Hann varð fyrir meiðslunum á æfingu í Denver á föstudaginn fyrir 3-2 sigur gegn Roma.
Antonio Valencia og Ashley Young voru vængbakverðir í leiknum í fjarveru Rafael.
Brasilíumaðurinn mun ekki taka þátt í þeim leikjum sem United á eftir í Bandaríkjunum og mun nú einbeita sér að því að verða klár í slaginn þegar United mætir Swansea í ensku úrvalsdeildinni á Old Trafford 16. ágúst.
Athugasemdir