Spánverjinn Esteban Granero mun á næstu dögum ganga í raðir Real Sociedad frá enska úrvalsdeildarliðinu QPR.
Þetta segja heimildir spænskra fjölmiðla, en Sociedad mun greiða 4 milljónir evra fyrir miðjumanninn.
Granero kom upp í gegnum unglingastarf Real Madrid en gekk í raðir QPR árið 2012. Var hann lánaður til Sociedad á síðustu leiktíð en lék einungis fjóra leiki eftir að hafa verið mikið meiddur.
Sociedad hefur þegar fengið til sín fimm leikmenn í sumar, þar á meðal landsliðsframherjann Alfreð Finnbogason.
Athugasemdir